Um Litla Húsið

Lítil sveitabúð, já það eru ansi mörg ár síðan að hugmyndin að litlu sveitabúðinni tók sér bólfestu í mínum huga og hefur ekki viljað sleppa takinu síðan.

En það er auðvelt að finna ótal ástæður fyrir því að það sé ekki gerlegt þegar maður er búsettur í öðrum landshluta. Einnig sú staðreynd að ég gæti nú líklega ekki framleitt það mikið af vörum að búðin væri alltaf full af einhverju fallegu. En ég er ekki mikið fyrir að fjöldaframleiða hluti, fæ fljótt leið á því og þarf oftast að vera gera eitthvað nýtt. Þannig að vörurnar mínar eru bara allskonar og oft ekkert eins.

Ég lauk prófi af listnámsbraut í fata- og textílhönnun frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 2015 þar sem mín áhugamál öll fengu byr undir báða vængi, saumur, jurtalitun, prjón, hekl og hugmyndavinna. Það að gera nýtt úr gömlu finnst mér áhugavert.

Varðandi opnunartíma Litla Hússins þá er það bara stundum opið að sumri til og alltaf best að hringja (s. 896-1180), senda póst (hhm@taktak.is) eða kíkja inn á síðuna (litlahusid.is) sem þó ennþá er í vinnslu.


A small farm shop in the countryside? It’s been many years since that idea took its place in my mind and I have not wanted to let go since.

It’s easy to find infinite reasons for not making it happen, especially when one is living in a whole different part of the country. Also the fact that I wouldn’t be able to create enough products that the shop would always be full of something beautiful. I am not keen on mass production, I quickly get bored and regularly need to start creating something new. That’s the reason why my products are of all sorts, variable and always unique.

I graduated from a clothing and textile design program in 2015 where my interests got to shine and grow. Learning new approaches in sewing, plant dyeing, knitting and crocheting helped me brainstorm new and different ideas to new projects. One of my passions is recycling old items to recreate a new interesting design.

Regarding the opening hours of Litla Húsið it will be open from time to time. To find out if Litla Húsið is open you can call (s. 896-1180), send an email (hhm@taktak.is) or check my website (litlahusid.is) for updates.